“Við verðum alltaf að standa með einhverju. Hlutleysi hjálpar kúgaranum, aldrei fórnarlambinu. Þögnin styrkir kvalarann, aldrei þann kvalda. Andstæða ástar er ekki hatur, heldur afskiptaleysi.
Elie Wiesel, sem lifði af helförina
Á leiðinni að Auschwitz búðunum gengur maður í gegnum nokkra ganga með hátölurum þar sem nöfn þeirra sem þar voru myrt eru stanslaus lesin upp. Við vorum á hraðferð, því við vorum nokkrum mínútum of sein og þurftum að flýta okkur til að ná hópnum okkar og leiðsögukonunni. Nöfnin þutu hjá, en þrátt fyrir flýtinn áttaði ég mig á því að ég væri að heyra nokkur af yfir milljón nöfnum.
Milljón. Ég er að ganga inn á svæði þar sem meira en milljón var myrt, meirihlutinn á þremur árum.
Stuttu seinna komu fyrstu tárin, þegar ég sá fyrst hið alræmda hlið inn í búðirnar með eigin augum. Hliðið sem við höfum öll séð ótal sinnum á ljósmyndum, þar sem orðin “Arbeit Macht Frei” gnæfa yfir. Það er óraunverulegt að sjá það í raunheimum.
Tárin áttu eftir að verða nokkuð fleiri.

Hvernig gat þetta gerst?
Saga helfararinnar hefur alltaf virkað svo framandi á mig. Hvernig gat þetta gerst? Hvernig komust Nasistar upp með að myrða sex milljónir gyðinga, tíu milljónir Sovíetmanna, tvær milljónir Pólverja, hálfa milljón Romafólks, og svo miklu fleiri, á örfáum árum?
Í heimsókninni í Auschwitz og Birkenau, og við lestur um málið í kjölfarið, skil ég það örlítið betur. Það var bara þægilegra að líta í hina áttina. Það var þægilegra að spyrja ekki spurninga þegar gyðingar voru teknir höndum um gjörvalla Evrópu og sendir í fangabúðir. Af því að gyðingahatur var jú landlægt um alla álfuna. Afmennskunin hafði verið í gangi svo lengi að fæstum fannst taka því að rugga bátnum þegar Nasistar byrjuðu að flytja þá í stórum stíl til Póllands til að drepa þá.
Þjóðverjar áttuðu sig á því að ef fólk þyrfti ekki að horfa á morðin eiga sér stað væri svo auðvelt að hundsa þau.
Þannig er líka auðvelt að skilja ástæður þess að Ísraelar fái óáreittir að útrýma Palestínumönnum. Þetta er langt í burtu. Við þurfum ekki að horfa á þetta.
Sendiboðinn skotinn
Þar til hugrakkt fólk eins og rapparinn Macklemore varpa ljósi á grimmdina á stórum sviðum í Bandaríkjunum. Þá er fólk neytt til að berja óhugnaðinn augum. Nokkuð sem tæknin leyfði augljóslega ekki á fimmta áratugnum. Það var auðveldara að passa að myndavélar rötuðu ekki inn í útrýmingabúðirnar en að stoppa alla snjallsíma og smámyndavélar á Gaza og Vesturbakkanum. Og þegar fólk sem jafnvel þykist vera með hjartað á réttum stað er neytt til að horfa upp á aðfarirnar hrekkur það í kút. Og skýtur sendiboðann.
Það fór ekki svo að skilaboðin eftir tónleika Ed Sheeran, þar Macklemore bað um frjálsa Palestínu, væri krafa um að Netanyahu yrði refsað fyrir þjóðarmorðið. Það var ekki ákall um viðskiptabann eða stöðvun á fjárstuðningi Bandaríkjanna við Ísrael.
Nei, ákallið var um slaufun á Macklemore.
Höldum því til haga að fyrir nokkrum árum fór Macklemore á svið í niðrandi gyðingagervi, svo það er auðvelt að stimpla hann sem gyðingahatara. (Hann hefur beðist afsökunar og sagt skýringarnar aðrar, en það er önnur umræða.)

Nema málið er að hann tók sérstaklega fram í ræðu sinni að hann væri ekki að ráðast gegn gyðingum, heldur gagnrýna Ísraelsríki, og auk þess væri hann ekki eingöngu að fara fram á frjálsa Palestínu, heldur líka frjálsa Kúbu, Kongó, Súdan, Ameríku o.s.frv.
En það er svo óþægilegt að horfast í augu við það að vestræn ríki styðji þjóðarmorð. Mun auðveldara að horfa í hina áttina á meðan tugþúsundir barna eru myrt.
Helför nútímans
Síðustu þrjú ár hafa Ísraelsmenn drepið 21.000 palestínsk börn. Þeir eiga vissulega enn nokkuð í land með að ná Þjóðverjum í seinna stríði, en þetta er engu að síður ótrúlegur fjöldi.
Hér er það sem stuðningsmenn þjóðarmorðsins (og já, stuðningur við Ísrael er stuðningur við þjóðarmorð, á því leikur enginn vafi) stökkva gjarnan inn í og mótmæla. Það þykir svo groddalegt að líkja útvöldu þjóðinni við Nasista. Og ekki er ég hissa, þar sem Ísraelsríki var stofnað sem viðbragð við helförinni.
En allir sem hafa kynnt sér sögu helfararinnar og það sem er að gerast fyrir botni Miðjarðarhafsins í dag átta sig fljótlega á því að orðræðan í kringum Palestínumenn er nánast orðrétt sú sama og var viðhöfð um gyðinga í Þriðja ríkinu.
Hér eru dæmi um nokkrar tilvitnanir:
“They are the vermin of the human race… Among the animals, they represent the rudiment of an insidious, underground destruction—just like the Jews among human beings.”
Josef Göbbels, áróðursmálaráðherra Þriðja ríkisins, 1940
“There are people there who are not worthy of life. They shouldn’t live. They’re not even people.”
Itamar Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, 2024
“If international finance Jewry inside and outside Europe should succeed in plunging the nations once more into a world war, the result will be… the annihilation of the Jewish race in Europe.”
Adolf Hitler, 1939
“I see all of Gaza as ours… encouraging as much emigration as possible, sending them to their countries, and for the terrorists, no emigration, nothing, just to kill them one by one.”
Itamar Ben-Gvir, 2024
“We are going to fulfill our promise that there will be no Palestinian state; this place belongs to us.”
Benjamin Netanyahu
“I have ordered a complete siege on the Gaza Strip. There will be no electricity, no food, no fuel. Everything is closed. We are fighting human animals and we are acting accordingly.”
Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísraels, 2023
“By envy and hatred, by struggle and warfare, even by spreading hunger, destitution and plagues, we shall bring all peoples to such a pass that the only escape will lie in total submission to our domination.”
Adolf Hitler
“There is no such thing as a Palestinian nation. There is no such thing as a Palestinian history. There is no such thing as a Palestinian people.”
Bezalel Smotrich, 2023
“We need to drop an atomic bomb on all of Gaza.”
Nissim Vaturi, ísraelskur stjórnmálamaður
“Kill everyone in Gaza, even babies.”
Eliyahu Mali, rabbíni
“Every child, every baby in Gaza is an enemy.”
Moshe Feiglin, ísraelskur stjórnmálamaður
Hugrekki og heigulsskapur
En aftur að poppstjörnunum. Við höfum væntanlega öll fylgst með þróun þessa máls. Auðkýfingurinn og Zionistinn Robert Kraft, eigandi New England Patriots og Gillette leikvangsins, setti Ed Sheeran afarkosti: annað hvort sæti Macklemore heima eða Sheeran fengi ekki að spila á Gillette. Hann fékk líka fleiri eigendur leikvanga með sér í lið, svo í heildina voru það sjö staðir sem hótuðu að loka á Sheeran ef Macklemore væri með. Fyrir þann glæp að styðja frjálsa Palestínu.
Eins og við vitum var Macklemore vísað frá, og í kjölfarið hættu hinir upphitunarlistamennirnir, Aaron Rowe, Finneas og Lukas Graham við að koma fram á tónleikaferðinni. Meira að segja Beoga, undirleiksband Sheerans, sagði sig frá verkefninu. Þar var samviskan látin ráða. Macklemore tilkynnti svo að hann hygðist gefa allan sinn ágóða af tónleikaferðinni, sem eru milljón dollarar, til góðgerðarstarfa í Palestínu og skoraði á Robert Kraft að leggja sama fé af hendi.
Kraft og Sheeran sögðust svo ætla að gefa tvær milljónir hvor til hjálparstarfs “á svæðinu,” sem ég túlka sem svo að þeir láti þetta fé renna til Ísraels, en allt um það.
Ed Sheeran hefur, eðlilega, hlotið mjög bágt fyrir sín viðbrögð við þessu máli. Fjöldi listamanna hefur tjáð sig, þar á meðal kallaði Roger Waters hann “prick” fyrir aumingjaskapinn, og hjálparsamtök á borð við Amnesty hafa fordæmt þetta.
Fyrst og fremst er þetta auðvitað svakalegt brot gegn málfrelsinu. Macklemore sagði ekkert hættulegt eða hatursfullt, bara að börn ættu skilið að vera ekki myrt.
Í ólgunni undanfarið hef ég svo séð ýmsa (oftar en ekki persónulega vini Ed Sheeran, en líka óbreytta borgara) verja Sheeran og benda á að hann sé háður duttlungum umboðsmanna og eigenda leikvanganna. Það sé ekki réttlátt að kasta Ed Sheeran fyrir borð þegar auðkýfingarnir séu í raun á bakvið þetta.
Þessi meðvirkni er það sem fer svo fyrir brjóstið á mér. Það er auðvitað rétt að Robert Kraft og félagar eru illmenni sem beita ofurauði sínum gegn því að palestínska þjóðin fái að njóta snefils af mennsku og miskun. En við sem höfum fylgst með valdastéttinni í Bandaríkjunum höfum vitað það lengi. Það sem kemur á óvart hérna, er beinlínis sjokkerandi, er aumingjaskapurinn í Ed Sheeran. Því við skulum alveg halda því til haga að Ed Sheeran er enginn fátæklingur. Hann er ekki á fyrstu stigum síns tónlistarferils. Við erum að tala um eina stærstu poppstjörnu heimsins, sem er metin á um 400 milljónir dala.
Ed Sheeran hefði hæglega getað svarað hótunum Robert Kraft fullum hálsi. Látið Kraft aflýsa tónleikunum, sem hefði verið samningsbrot og hann hefði þá þurft að bæta það tjón gagnvart listafólkinu og miðahöfum. Jafnvel þótt svo hefði ekki farið væri það ekki mikið mál fyrir jafn auðugan mann og Ed Sheeran að taka á sig kostnaðinn við að aflýsa þessum tónleikum. Leiðinlegt fyrir fólkið sem keypti miða, en hann hefði auðveldlega getað bent á það að Robert Kraft hefði sett afarkosti sem brytu á málfrelsi listafólks.
Ed Sheeran hefði komið út úr þessu sem hetja. Og verið minnst eftir áratugi sem listamanns sem neitaði að lúffa fyrir auðvaldinu.
En þess í stað lét hann undan, og missti alla samstarfsaðila sína á tónleikaferðinni. Hann sendi svo frá sér hörmulega yfirlýsingu, sem gerði bara illt verra, þar sem hann sagðist vilja halda hlutleysi í pólitískum málum. Þrátt fyrir að hafa margoft tekið afstöðu í ýmsum málum, eins og Brexit, þingkosningum í Bretlandi, málefnum Úkraínu og auk þess hefur hann setið fyrir á myndum með ísraelskum gísl sem hafði verið í haldi Hamas.
Nei, þetta er ekki hlutleysi. Þetta er meðvirkni með þjóðarmorði.
Og öll sem nú verja Ed Sheeran með þeim rökum að Zionistarnir séu verri eru að taka þátt í þessari meðvirkni. Þetta er nákvæmlega það sama og þegar milljónir litu undan þegar nágrönnum þeirra, gyðingum, fötluðum, samkynhneigðum, o.s.frv., var smalað upp í lestir á leið í útrýmingarbúðir.
Það er bara svo miklu auðveldara að horfa í hina áttina. Að rugga ekki bátnum. Því eins og við sjáum nú svart á hvítu hika peningaöflin ekki við að hafa af fólki lifibrauð og æru þegar það dirfist að mótmæla þjóðarmorðinu.
Sem betur fer virðist þetta vera að breytast, hægt og bítandi. Viðbrögðin við þögguninni á Macklemore hafa verið meiri en við höfum séð í viðlíka málum hingað til. Það vekur ákveðna von um að fólk sé að taka við sér.
Kannski er einhver von um að Írael verði stoppað af áður en þeim tekst að þurrka Palestínu endanlega út. Kannski.
Það tókst að stöðva Nasista á sínum tíma. Vonandi verður þessi helför líka stöðvuð af.
Viðbrögðin á samfélagsmiðlum hafa í það minnsta verið stórkostleg.












